Skíðaganga í Bárðardal
DAGS
Kl.
9-15
BROTTFÖR Kl.
9
ERFIÐLEIKASTIG
Fararstjórn:
List of services
List of services

Lýsing
Brottför kl. 9 frá FFA Strandgötu 23.
Safnast saman í bíla ef vill. Þeir sem þiggja far með öðrum taka þátt í bílakostnaði.
Fararstjórn: Jóhannes Áslaugsson og Hjörvar Jóhannesson
Ekið að Fosshóli og beygt þar inn í Bárðardal og ekið að Arnarstöðum um það bil 12 km innan við Fosshól. Þaðan er farið upp á heiðina.
Gengið verður í landnámi Gnúpa Bárðar og í Lundarbrekku þar sem hann settist að. Lítið um erfiðar brekkur á þessari leið.
Sagt verður frá heiðarbýlum sem tilheyra gamla Bárðdælahreppi og ástarævintýrum heiðarbúa.
Vegalengd: 17 km. Gönguhækkun: 150-170m.
Verð: 2.700 / 4.400 kr.
Greitt við brottför
Búnaður
Dagsferðir á gönguskíðum
Nauðsynlegur búnaður í dagsferð á gönguskíðum:
Gönguskíði og skíðaskór. Best er að hafa skíði með stálköntum/utanbrautarskíði
Skíðastafi (athugið að ólin sé þannig að þið komist í þykkum vettlingum í hana)
Gott að hafa meðferðis skinn á skíðin
Skíðagleraugu, sólarvörn og varasalvi
Vind- og vatnsheldan jakka
Vind- og vatnsheldar buxur
Ullarnærföt
Hanska/vindhelda vettlinga
Drykkjarflösku og smá orku til að narta í t.d. orkustykki (alltaf eitthvað heitt að drekka)
Sólarvörn og varasalvi
Gott að hafa höfuðljós í lengri ferðir
Sjúkragögn, hælsærisplástur, verkjalyf og annað smálegt
Sjúkragögn (hælsærisplástur og annað smálegt)
Gott að hafa létta úlpu og þurra vettlinga (gott líka að hafa „pokavettlinga“ til að hafa yfir aðra). Margir hafa líka með sér þurra húfu

